- Harpa
26.1.13
String of lights
- Harpa
22.1.13
11.1.13
Ovo high chair
6.1.13
Sæt íbúð í Svíþjóð
Rakst á þessa ógurlega fallegu og björtu íbúð á pinterest og langaði að sýna ykkur :)
via lookslikewhite
- Harpa
- Harpa
5.1.13
Notknot púði
Gleðilegt nýtt ár allir saman! :) Ég vona að þið hafið haft það gott um jólin, ég tók mér smá bloggpásu í fríinu og er búin að hafa það voða gott á Íslandi.
Ég fór niður á Laugarveg á Þorláksmessu, mig langaði að kíkja inn í örfáar búðir og sjá mannlífið og svona. Það var algjörlega troðið alls staðar og ég beið í smá röð til að komast inn í Hrím, það er alltaf svo gaman að skoða þar. Þessi púði sem heitir Notknot greip athygli mína. Hann er frá Umemi og er hannaður af Ragnheiði Ösp. Hann er úr íslenskri ull og kemur í nokkrum litum og gerðum.
Myndir fengnar af hrim.is
- Harpa
9.12.12
Home for christmas !
Í dag er vika í Íslandsför hjá mér og kærastanum. Ég var að enda við að klára tvö lokaverkefni svo ég brosi allan hringinn. Þá þarf bara að klára eitt lokaverkefni enn, þrífa íbúðina, pakka og svo jólafrí til Íslands. Það er líka svona ofsalega notalegur snjóstormur úti, jólatónlist í eyrunum og tilhlökkun í maganum!
Eigiði góðan Sunnudag !
- Silvá
4.12.12
Óskalistinn
1. Rauður varalitur, þessi er frá Make up store og heitir China red. Af einhverjum ástæðum á ég ekki rauðan varalit..mér finnst kominn tími til.
2. Break out the baubly necklace frá Modcloth. Sé það alveg fyrir mér með jólakjólnum!
3. Kubus kertastjakinn frægi eftir Mogens Lassen.
4. Jeffrey Campbell Mariel úr svörtu rúskinni. Þessir eru aldrei til í minni stærð og því búin að dreyma um þá leeengi.
5. Topcoat með gylltu stóru glimmeri, þetta heitir Shake your groove thing frá Deborah Lippmann. Gerir hvaða naglalakk sem er fancy ;)
6. Ally skirt frá Monki. Litur: Black Magic.. ég elska hvað þau nefna litina á vörunum sínum :).
- Harpa
3.12.12
4 kræsingar í Kaupmannahöfn
Mig langaði til þess að deila með ykkur því sem mér finnst allra allra best að "treat'a" mig með hér í Kaupmannahöfn.
1. Chai latte á Lagkakehuset
Ég elska Chai latte á þessum árstíma og mér finnst það langbest á Lagkakehuset. Lagkakehuset er bakarí sem er mjög víða í Kaupmannahöfn og það er eiginlega sama hvar maður er, maður rekst alltaf á það!
2. Agnes Cupcakes
Bestu Cupcakes sem að ég hef smakkað. Agnes Cupcakes er staðsett í Magasín og ég mæli algjörlega með því að smakka þær ef þið eruð í Kaupmannahöfn. Ég mæli sérstaklega með því að smakka lakkrís bragðið, eins furðulega og það hljómar.
3. Pizza á Vesuvio Of Copenhagen
Þessi pizzastaður er staðsettur á einu horninu á ráðhústorginu. Þessi staður er mjög vinsæll meðal Íslendinga og það klikkar ekki að maður heyrir alltaf í Íslendingum þegar maður sest þarna inn. Svakalega góðar pizzur og rosalega notalegur staður. Matseðillinn er aðeins í dýrari kantinum en algjörlega þess virði!
4. Ís í Paradís
Þessi litla sæta ísbúð er mjög víða í Kaupmannahöfn. Þegar ég var lítil fór afi minn, ís-unnandi mikill, alltaf með mig í þessa ísbúð því hann sagði að þetta væri besti ís í heimi.. Sem hann svo sannarlega er!
- Silvá
30.11.12
24 dagar til jóla!
Ég er algjört jólabarn og er farin að þrá að skreyta eitthvað. Eina jólaskrautið sem ég á hér úti í Aarhus eru þrjú jólasvín sem elskuleg móðir mín kom með fyrir mig þegar hún kom í heimsókn. Mér finnst þessi lukt hér að ofan frá Sögne Home æði og býður upp á svo mikla möguleika. Væri alveg til í að eignast eitt stykki. Finnst skreytingin líka mjög jólaleg og flott :) Ég ætla að reyna að finna eitthvað smá jólaksraut niður í bæ í kvöld. Það má búast við mikilli jólastemningu en kveikt verður á jólaskreytingum og jólatrénu, jólaveinninn kemur í heimsókn, svo verður skrúðganga og læti. Eigið góða helgi! :)
- Harpa
29.11.12
Subscribe to:
Posts (Atom)